Guðrún Magnúsdóttir

ID: 1745
Fæðingarár : 1898

Guðrún Magnúsdóttir fæddist 23. október, 1898 í A. Skaftafellssýslu.

Maki: 22. nóvember, 1919 Jón Þorsteinn Gunnsteinsson fæddist í Riverton 21. febrúar, 1891. Eyjólfsson vestra.

Börn: 1. Jóhannes Vilberg f. 23. febrúar, 1921 2. Evelyn Guðfinna f. 1923 3. Jórunn Iris f. 26. febrúar, 1926 4. Jón Lárus f. 11. apríl, 1927 5. Wilfred Percy f. 8. júní, 1929 6. Steinn Albert f. 19. júlí, 1930 7. Thora f. 2. desember, 1932 8.Louise Edith f. 10. apríl, 1934 11. Stefán f. 20. júní, 1937.

Guðrún var dóttir Magnúsar Jónssonar og Jórunnar Þorvarðardóttur, sem vestur fluttu með barnahóp árið 1903. Jón var sonur Gunnsteins Eyjólfssonar of Guðfinnu Eiríksdóttur í Riverton. Hann tók við búinu á Unalandi þegar faðir hans lést árið 1910 og rak það í tíu ár. Þá var hann giftur maður, setti upp bú á sínu heimilisréttarlandi vestur af Riverton.  Landið þar var erfitt, mjög blautt og leiðir þangað slæmar. Hann missti fyrsta hús sitt í eldsvoða en gafst ekki upp og byggði strax annað. Smám saman stækkaði bú hans og varð hann einn af máttarstólpum sveitar sinnar.