Guðrún Sigurðardóttir

ID: 6313
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1943

Guðrún Jóhanna Sigurðardóttir fæddist 26. júlí, 1864 í Húnavatnssýslu. Dáin 14. ágúst, 1943 í Manitoba.

Maki: Sveinn Magnússon fæddist 30. júlí, 1853 í Húnavatnssýslu, d. í Nýja Íslandi 22. maí, 1926.

Börn: 1. Björn f. 15. febrúar, 1885, d. 7. ágúst,1929 2. Magnús f. 1891.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og fóru í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Námu þar land og nefndu Hörghól vegna þess að landið var býsna grýtt.