Guðrún Símonardóttir fæddist 1856 í Skagafjarðarsýslu.
Maki: 1877 Sveinn Sveinsson f. í Skagafjarðarsýslu árið 1847, d. 30. júlí, 1923 í N. Dakota.
Börn: Fædd vestra 1. Símón f. á Gimli 2. ágúst, 1878 2. Þorbjörg f. 30. ágúst, 1880 í Mountain, d. 10. mars, 1881 3. Jón (John) f. 6. september, 1882, d. 30. mars, 1884 4. Jón (John) f. 16. mars, 1885 5. Kristbjörg Sigrún f. 8. mars, 1888 6. Þorbjörg f. 1891 7. Guðmundur Jóhannes f. 15. október, 1893, d. 30. nóvember, 1893 8. Sigurlaug f. 20. september, 1896 9. Sveinn f. 12. apríl, 1899 10. Sigríður Rannveig f. 27. ágúst, 1902.
Sveinn og Guðrún fóru vestur til Nýja Íslands með sama skipi frá Sauðárkrók árið 1876. Sveinn nam þar land en flutti þaðan í Thingvallabyggð í N. Dakota árið 1878 og nam land nærri Mountain.
