Guðrún Steingrímsdóttir fæddist í Borgarfjarðarsýslu 5. október, 1870.
Maki: 21. október, 1890 Guðmundur Elías Guðmundsson f. í Árnessýslu 29. apríl, 1867, d. í Washington 29. september, 1957 Goodman vestra.
Börn: 1. Elísabet f. 4. nóvember, 1891, dó barnung á Íslandi 2. Matthías f. 29. janúar, 1893 3. Sigrún f. 8. ágúst, 1894 4. Guðmundur f. 30. júlí, 1897 5. Elísabet f. 5. nóvember, 1898, dó barnung 6. Henrietta Elísabet f. 23. september, 1901, d. 25. nóvember, 1952 7. Valtýr f. 10. júlí, 1904 8. Guðrún Dagmar f. 2. maí, 1906 9. Kristín Esther f. 20. júlí, 1907 10. Agnes Ísafold f. 28. febrúar, 1911, 11. Steinunn Jóna f. 4. febrúar, 1915 12. Þórhallur Garðar f. 4. febrúar, 1917.
Fluttu vestur til N. Dakota árið 1900 og bjuggu þar í tvö ár. Fóru þaðan til Winnipegosis í Manitoba árið 1902 en fluttu þaðan árið 1904 í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem þau bjuggu til ársins 1923. Þá fluttu þau til Point Roberts í Washingtonríki og áttu þar heima í 26 ár. Guðmundur bjó síðustu árin sín í Stafholti í Blaine.
