ID: 2261
Fæðingarár : 1877
Dánarár : 1961
Guðrún Steinólfsdóttir fæddist 16. september 1877 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin í Vancouver 8. júlí, 1961.
Maki: 28. desember, 1897 Hjörtur Friðriksson f. í Nýja Íslandi 2. júní, 1878, d. á dvalarheimilinu Höfn í Vancouver 4. júlí, 1961
Börn: 1. Ingunn f. 19. júní, 1899 2. Helga f. 7. mars, 1902 3. Margrét Capitola f. 14. september, 1903 4. Mildfríður Friðrika f. 18. júní, 1908 5. Steinunn Guðrún f. 6. maí, 1910, d. 1918.
Hjörtur ólst upp í Fjallabyggð í N. Dakota en bjó fáein ár í Milton áður en hann fór í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1906 og stundaði búskap. Árið 1930 flutti hann til Arras í Bresku Kólumbíu og seinna til Dawson Creek.
