Guðrún Þorláksdóttir

ID: 1220
Fæðingarár : 1863
Dánarár : 1949

Guðrún Þorláksdóttir Mynd VÍÆ II

Guðrún Þorláksdóttir fæddist 24. október, 1863 í Árnessýslu. Dáin 12. janúar, 1949 í Bresku Kólumbíu.

Maki: 2. júní, 1895 Kristján Ólafsson f. 18. júní, 1873 í Árnessýslu.

Börn: 1. María Þorláksína Ágústa f. 7. ágúst, 1895 2. Ólafur Júlíus f. 16. júní, 1897 3. Páll Ingimar f. 5. ágúst, 1899 4. Þorlákur Edvin f. 1901 5. Kristrún Hallfríður f. 16. júní, 1903 6. Friðfinnur Valtýr f. 1905 7. Guðbjörg Mable f. 7. febrúar, 1910

Kristján flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Guðrún fór þangað ári síðar. Þau námu land í Hallson byggð í N. Dakota og bjuggu á því til ársins 1902 en þá fluttu þau til Winnipegosis í Manitoba. Voru þar til ársins 1905 en fluttu það ár í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land í Foam Lake byggð. Bjuggu þar til ársins 1943 en þá fluttu þau til New Westminister í Bresku Kolumbíu.