Guðrún Þorsteinsdóttir

ID: 9657
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Guðrún Þorsteinsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 9. ágúst, 1842. Dáin 9. janúar, 1925 í Vatnabyggð.

Maki: Jónas Kristjánsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 28. september, 1845, d. í Saskatchewan 1. febrúar, 1915.

Börn: 1. Halldór f. 1878 2. Hólmfríður f. 1880 3. Hlaðgerður f. 1884 4. Hákon f. 1887  5. Matthildur f. 1889

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og þaðan til N. Dakota. Hann bjó í Pembinabyggð fram yfir aldamótin en fluttu 1902 vestur í Vallarbyggð í Saskatchewan. Árið 1912 færðu þau sig norður í Vatnabyggð og settust að í Wynyard.