Guðrún V Oddsdóttir

ID: 16578
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1905

Guðrún Vilborg Oddsdóttir fæddist 6. janúar 1905 í Gimli. Rooney Anderson fyrir hjónaband.

Maki: 10. september, 1926 Bjarni Ásgeir Egilsson f. í Winnipeg 11. febrúar, 1901, d. í Gimli 27. febrúar, 1965. Barney Asgeir Egilson vestra.

Börn: Barnlaus.

Guðrún var dóttir Odds Árnasonar úr S. Þingeyjarsýslu og konu hans, Guðlaugar Bjargar Gísladóttur frá Njarðvík í N. Múlasýslu. Þau bjuggu í Gimli. Bjarni var sonur Egils Egilssonar og Guðveigar Jónsdóttur í Gimli. Ungur að árum fékk hann mikinn áhuga á bæjarmálum, sérstaklega málum er varðaði yngri kynslóðir. Hann sat í bæjarstjórn og varð bæjarstjóri árið 1941. Á næstu árum breyttist Gimli úr þorpi (village) í bæ (town) og varð höfuðstaður Íslendinga í Manitoba.