Guðvaldur Jónsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 4. október, 1841. Dáinn árið 1926 í Saskatchewan. Jackson vestra.
Maki: 1868 Kristín Þorgrímsdóttir f. í N. Múlasýslu 7. nóvember, 1847
Börn: 1. Sigríður f. 1. nóvember, 1868 2. Guðjón f. 1874 3. Sigurveig f. 4. febrúar, 1876 4. Eymundur f. 19. júní, 1878 5. Stefanía f. 29. apríl, 1882 6. Elín (Ella) f. 7. september, 1885 7. Sigþrúður f. 1888. Guðvaldur átti dóttur með Agnesi Jónsdóttur: Björg f. 1880.
Guðvaldur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og sama ár áfram til N. Dakota með konu sína og sex börn þeirra. Elsta barnið, Sigríður, kom vestur með maka og sínum börnum árið 1903. Agnes, barnsmóðir Guðvalds fór vestur ári síðar með dóttur þeirra, Björgu. Guðvaldur nam land í Akrabyggð sunnan Tunguár. Hann seldi það árið 1899 og flutti til Roseau í Minnesota. Vorið 1907 seldi Guðlaugur allt sitt í Roseau og flutti til Winnipeg í Manitoba, dvaldi þar stutt því um sumarið er hann kominn á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan.
