Gunnar Bergvinsson

ID: 14371
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1956

Gunnar Bergvinsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1880. Dáinn árið 1956 í Seattle.

Maki: 29. október, 1905 Sigurbjörg Hálfdánardóttir f. 13. júlí, 1880 í Minneota í Minnesota, d. 23. mars, 1950 í Seattle. Bertha Thorsteinson vestra.

Börn: 1. Stefía Sigvaldína f. 26. september, 1906 2. Theodór Bergvin f. 25. júní, 1908 3. Bertel f. 1912 4. Ellis f. 1914.

Gunnar flutti vestur til Minneota í Minnesota árið 1900. Bjó þar til ársins 1910 er hann flutti vestur til Seattle í Washington og bjó þar alla tíð. Hann var múrarameistari og verktaki. Sigurbjörg var dóttir Hálfdánar Þorsteinssonar og Sigurborgar Jónsdóttur, sem bjuggu í Minneota.