ID: 10868
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Gunnar Jóhannsson fæddist 20. mars, 1874 í N. Þingeyjarsýslu.
Ókvæntur og barnlaus.
Gunnar fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fór þaðan til N. Dakota. Vann ýmist í Mountain eða Pembina en árið 1907 fír hann heim til Íslands og bjó þar í tvö ár. Systir hans Dómhildur missti mann sinn frá þremur börnum. Hún fór með Gunnari vestur til Kanada árið 1909 og bjuggu þau á landi sem Gunnar tók í Vallarbyggð í Saskatchewan. Þau fluttu norður til Wynyard í Vatnabyggð árið 1912 og þaðan á land sem Gunnar keypti rétt utan við bæinn árið 1915. Þar bjuggu þau til ársins 1951 þegar þau fluttu aftur í Wynyard.
