Gunnar Matthíasson

ID: 8486
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla

Gunnar Matthíasson og Guðný Árnadóttir Mynd Einkasafn

Gunnar Matthíasson fæddist að Odda í Rangárvallasýslu 7. ágúst, 1882.

Maki: 25. október, 1905 Guðný Árnadóttir f. 3. júlí, 1883 í Argylebyggð í Manitoba.

Börn: 1. Elín Guðrún f. 29. ágúst, 1907 2. Unnur Helga f. 31. júlí, 1911 3. Þóra Anna f. 7. janúar, 1914 4. Matthías Árni f. 8. mars, 1915.

Gunnar var sonur Matthíasar Jochumssonar skálds og þriðju konu hans, Guðrúnar Runólfsdóttur. Hann flutti til Akureyrar með foreldrum sínum árið 1887 og var í Möðruvallaskóla eitt ár. Flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1898 og fór í Argylebyggðina. Hann flutti vestur að Kyrrahafi til Seattle og lærði múrverk. Vann við það ein tíu ár en lærði þá lyfjafræði, keypti lyfjaverslun með Bjarna Jóhannssyni og saman ráku þeir hana í 14 ár. Flutti til Los Angeles árið 1937 þar sem hann sneri sér aftur að múrverki. Hann heimsótti Ísland fyrst árið 1909, aftur árið 1947 með konu sinni en þá höfðu íslensk ungmenni sem nutu aðstoðar þeirra á námsárum sínum í Kaliforníu boðið þeim til Íslands. Loks heimsótti hann Ísland árið 1954 með Þóru dóttur sinni sem þá var kunn söngkona og hélt hún nokkrar söngskemmtanir í Reykjavík. Guðný var dóttir Árna Sveinssonar, landnámsmanns í Argylebyggð og konu hans Guðrúnu Helgu Jónsdóttur.