
Gunnar Sæmundsson Mynd VÍÆ V

Margrét Halldórs-dóttir Mynd VÍÆ V
Gunnar Sæmundsson fæddist í Geysisbyggð í Nýja Íslandi 28. júlí, 1908. Dáinn 18. febrúar, 1983. Simundsson vestra.
Maki: Margrét Olivia Dóra Halldórsdóttir f. 14. ágúst, 1918, f. 20.mars, 1986. Simundsson í hjónabandi.
Börn: 1. Erla Margrét f. 25. febrúar, 1948 2. Elva Dagmar f. 28. janúar, 1950, d. 4. apríl, 2026 3. Baldur Ómar f. 17. júní, 1952 4. Birgir Sævar f. 18. ágúst, 1953, d. 1. ágúst, 1971 5. Bragi Dunstan Erlingur f. 16. apríl, 1956 6. Jóhann Halldór Kár f. 13. maí, 1959 7. Anna Svava f. 1. september, 1955.
Foreldrar Gunnars voru Jóhann Pétur Sæmundsson og Þóra Guðmundsdóttir, landnemar í Geysisbyggð í Nýja Íslandi. Margrét var dóttir Guðmundar Arngrímssonar og Stefaníu Baldvinsdóttur, við Vogar í Manitoba. Gunnar ólst upp í föðurhúsum og hóf búskap ungur að árum. Í Vestur Íslenskar Æviskrám IV segir svo um Gunnar: ,,Kallaði Gunnar bæ sinn Breiðablik. Þrátt fyrir litla skólagöngu, nema barnaskóla, hlaut Gunnar mikla viðurkenningu Íslendinga, vestan hafs og austan fyrir áhuga sinn á íslenskri tungu og menningu, enda var hann viðurkenndur einn hinn snjallasti maður á því sviði um sína daga.“
