Gunnlaugur Gíslason

ID: 10798
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1954

Gunnlaugur og Halldóra fóru ferða sinna í hestakerru í Vatnabyggð Mynd RbQ

Gunnlaugur Gíslason fæddist í N. Þingeyjarsýslu 22. október, 1862. Dáinn 4. október, 1954 í Wynyard.

Maki: 1896 Halldóra Jónasdóttir f. 21. febrúar, 1877, d. 16. júní, 1958 í Wynyard.

Börn: 1. Guðrún d. 1915 2. Arnþrúður f. 19. janúar, 1899.

Gunnlaugur flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með föður sínum, mági og systur. Þau fóru í Pembinabyggð. Gunnlaugur og Halldóra fóru um 1903 í Vallarbyggð í Saskatchewan og námu þar land.  Þau fluttu í Vatnabyggð árið 1912 og keyptu land austur af Wynyard. Bjuggu þar lengstum en þegar árin færðust yfir seldu þau og fluttu í Wynyard.