Gunnlaugur Sölvason fæddist 23. nóvember, 1854 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Winnipeg 1. september, 1934.
Maki: 26. september, 1891 í Winnipeg Guðríður Helgadóttir f. 12. ágúst, 1853, D. 12. maí, 1924 í Winnipeg.
Börn: 1. Björn f. í Winnipeg 4. febrúar, 1890, d. í járnbrautarslysi 18. júlí, 1907 2. Stefán (Steve) f. 28. janúar, 1893 3. Dagbjört Lilja f. 17. febrúar, 1896 4. Guðrún f. 21. febrúar, 1899, d. 19. júlí, 1899. Guðríður átti fyrir tvö börn: Halldóru Helgadóttur f. 1881 og Jón Helgason f. 1887.
Gunnlaugur og Guðríður fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889. Þau bjuggu í Winnipeg til aldamóta en fluttu þá til Selkirk. Bjuggu þar lengstum en Gunnlaugur byggði hús á landi sínu vestur af Riverton, þar sem hann rak þar verslun einhvern tíma. En fasta búsetu hafði hann þar ekki og aldrei fór Guðríður þangað.
