Guttormur Guttormsson

ID: 11991
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1956

Guttormur Guttormsson

Rannveig Gísladóttir Myndir VÍÆ II

Guttormur Guttormsson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 10. desember, 1880. Dáinn í Spokane í Washingtonríki 25. júlí, 1956.

Maki: 10. desember, 1909 Rannveig Gísladóttir f. í Hallson í N. Dakota 9. janúar, 1888.

Börn: Gísli Ragnar f. 5. október, 1910  2. Fjóla María f. 6. maí, 1913  3. Jón Lárus f. 28. apríl, 1915 4. Helga Guðlaug f. 1. júní, 1917 5. Elín Thora f. 5. janúar, 1920 6. Anna Sigrún f. 29. október, 1922 7. Stefán Thorsteinn f. 12. júní, 1925.

Guttormur flutti vestur með foreldrum sínum og systkinum til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Hann var vígður prestur í Winnipeg 27. júní, 1909. Þjónaði íslenskum söfnuðum vestur við Kyrrahaf 1911 – 1912, og Churchbridge í Saskatchewan 1912-1918. Var ráðinn prestur St. Pauls safnaðar í Minneota í Minnesota árið 1918 og þjónaði þar til ársins 1956. Rannveig var dóttir Gísla Egilssonar og Ragnheiðar Halldóru Jóhannsdóttur sem námu land í Hallson í N. Dakota og í Lögbergsbyggð í Saskatchewan.