Halldór Björnsson fæddist 11. september, 1873 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Blaine 11. desember, 1943. Halldór B Johnson vestra.
Maki: 1) Ingibjörg Pétursdóttir f. 15. nóvember, 1881, d. 28. september, 1913 2) 27. apríl, 1917 Kristín Jónsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 13. september, 1881. Johnson vestra.
Börn: Með Ingibjörgu 1. Ninna Stevens 2. Sigrid Johnson 3. J. H. Saunder. Með Kristínu: 1. Jón Gunnlaugur f. 12. febrúar, 1918 2. Steinunn Elizabeth f. 21. júní, 1921, d. 26. október, 1953. Halldór átti 3 börn með fyrri konu, sjá hann.
Kristín var dóttir Jóns Péturssonar og Steinunnar Jónsdóttur, sem vestur fluttu árið 1883. Þau settust að í Geysisbyggð í Nýja Íslandi þar sem Kristín ólst upp. Hún var saumakona og vinnukona í sveit áður en hún giftist. Halldór var sonur Björns Jónssonar og Sigríðar Þorláksdóttur er vestur fluttu árið 1876. Kristín og Halldór bjuggu í Blaine í Washington.