Halldór Halldórsson

ID: 8243
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1821
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1889

Halldór Halldórsson fæddist árið 1821 í N.Þingeyjarsýslu. Dáinn í húsbruna í desember, 1889.

Maki: Sigríður Þorláksdóttir f. árið 1830 í N. Þingeyjarsýslu, d. í húsbruna í N. Dakota í desember, 1889.

Börn: 1. Halldór f. 1873 2. Halldóra f. 1877.

Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1882 og settust að í Garðarbyggð. Vesturfaraskrá og manntal á Íslandi 1880 segja hana ráðskonu hjá Halldóri en heimild í N. Dakota, grein eftir Halldór yngra segir þau hjón. Þeir feðgar og nafnar voru að sinna skepnunum þegar þeir sáu reyk leggja frá húsinu, hlupu til því Sigríður lá veik þar inni. Halldór eldri reyndi inngöngu en reykurinn bar hann ofurliði, hann missti meðvitund og dó þar ásamt Sigríði.