
Halldór Sigurðsson Mynd VÍÆ I
Halldór Sigurðsson fæddist í Mýrasýslu 15. september, 1884.
Maki: 1) Þorgerður Jónsdóttir Hördal f. 1886, d. 5. febrúar, 1927 2) 15. október, 1947 Rannveig Pétursdóttir f. 19. september, 1894 í Mýrasýslu.
Börn með fyrri konu: 1. Idora Ágústína f. 21. september, 1907 2. Halldór f. 31. júlí, 1921, dó ungur 3. Eleanor, d. í barnæsku.
Halldór var sonur Sigurðar Sigurðssonar og Ragnheiðar Þorveigu Þórðardóttur í Rauðamel í Mýrasýslu. Þar ólst Halldór upp til sautján ára aldurs, fór þá vestur um haf haustið 1901. Fót til Winnipeg og bjó þar alla tíð. Hann varð múrari og seinna byggingameistari með mikil umsvif í byggingariðnaði í hálfa öld. Þorgerður var ættuð frá Hóli í Hörðudal í Dalasýslu og fór vestur með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni og Halldóru Baldvinsdóttur. Rannveig var dóttir Péturs Guðmundssonar og Margrétar Sigurðardóttur er vestur fluttu árið 1900.