Halldóra Jónasdóttir

ID: 11196
Fæðingarár : 1877
Dánarár : 1958

Halldóra Jónasdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 21. febrúar, 1877. Dáin 16. júní, 1958 í Wynyard.

Maki: 1896 Gunnlaugur Gíslason f. í N. Þingeyjarsýslu 22. október, 1862. Dáinn 4. október, 1954 í Wynyard.

Börn: 1. Guðrún d. 1915 2. Arnþrúður f. 19. janúar, 1899.

Gunnlaugur flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með föður sínum, mági og systur. Þau fóru í Pembinabyggð. Gunnlaugur og Halldóra fóru um 1903 í Vallarbyggð í Saskatchewan og námu þar land.  Þau fluttu í Vatnabyggð árið 1912 og keyptu land austur af Wynyard. Bjuggu þar lengstum en þegar árin færðust yfir seldu þau og fluttu í Wynyard.