
Halldóra Sveinsdóttir og Rafnkell Eiríksson Mynd VÍÆ VI
Halldóra Sveinsdóttir fæddist 4. ágúst, 1881 í V. Skaftafellssýslu. Dáin 6. ágúst, 1939 í Manitoba.
Maki: 1910 Rafnkell Eiríksson f. í A. Skaftafellssýslu 10. október, 1879, d. í Manitoba 27. ágúst, 1972. Kjeli Eirikson vestra
Börn: 1. Geiri Ragnar f. 6. september, 1911 2. Steinunn f. 23. apríl, 1913 3. Sveinbjörg (Sveina) Þorgerður f. 16. apríl, 1914 4. Eiríkur Thor f. 6. ágúst, 1916 5. Gilbertina Rakel f, 9. apríl, 1918.
Halldóra fór vestur til Manitoba árið 1903, með móður sinni, Gróu Magnúsdóttur og systur sinni, Steinunni. Rafnkell fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum Eiríki Rafnkelssyni og Steinunni Jónsdóttir og systkinum árið 1889 og settust að í Mikley. Tveimur árum seinna nam Eiríkur land í Ísafoldarbyggð og nefndi Flugustaði. Þar ólst Rafnkell upp til ársin 1903 en þá hrökkluðust flestir íbúar Ísafoldarbyggðar á brott vegna flóða í Winnipegvatni. Fjölskyldan flutti í Lundarbyggð. Halldóra fór vestur til Manitoba með móður sinni, Gróu Magnúsdóttur og systur sinni, Steinunni árið 1903.
