Hallgrímur B Sigurðsson

ID: 18122
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : Pembina
Dánarár : 1956

Hallgrímur Bergman Sigurðsson Mynd VÍÆ II

Hallgrímur Bergman Sigurðsson fæddist í N. Dakota 24. nóvember, 1886. Dáinn í Eyfordbyggð í N. Dakota 11. janúar, 1956.

Maki: 24. nóvember, 19o9 Ólöf Kristjánsdóttir f. í Pembina, N. Dakota 7. apríl, 1889.

Börn: 1. Stefán Baldur f. 20. maí, 1914.

Hallgrímur var sonur Sigurðar Krákssonar og Kristínar Þorsteinsdóttur landnema í N. Dakota árið 1880. Foreldrar Ólafar voru Kristján Halldórsson og María Rögnvaldsdóttir landnema í N. Dakota. Hallgrímur var bóndi í Eyfordbyggð í N. Dakota.