Hallgrímur Hálfdanarson

ID: 9020
Fæðingarár : 1871
Dánarár : 1963

Hallgrímur Hálfdanarson Mynd VÍÆ II

Hallgrímur Hálfdanarson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 12. ágúst, 1871. Dáinn í Wynyard, Saskatchewan 10. ágúst, 1963. Carl Grimson vestra.

Maki: 6. desember, 1895 í N. Dakota, Kristín Rósa Sigurpálsdóttir f. 23. mars, 1865, d. í Saskatchewan 3. júní, 1957.

Börn: 1. Pauline f. 10. febrúar, 1897 2. Sigurrós (Rose) f. 15. ágúst, 1900 3. Olavia f. 10. febrúar, 1903 4. Lillian f. 10. október, 1905 5. Walter f. 5. mars, 1919.

Hallgrímur flutti vestur árið 1881 með móður sinni, Ingibjörgu Jónatansdóttur, systur sinni Jóhönnu og bróður sínum Páli. Þau fóru til Minnesota þar sem Sigmundur, bróðir Ingibjargar var búsettur. Þar ólst Hallgrímur upp en flutti þaðan til N. Dakota. Nýgiftur flutti hann næst til Poplar Park í Manitoba og svo til Piney í Manitoba um aldamótin. Þar bjuggu þau í átta ár, fóru þá vestur að Kyrrahafi og settist að í Reymond í Washingtonríki. Þar vann Hallgrímur við eitt og annað til ársins 1912, flutti þá til Edmonton í Alberta þar sem þau voru til ársins 1917. Þá lá leiðin til Wynyard í Saskatchewan þar sem þau bjuggu eftir það.