
Hannes Kristjánsson Mynd VÍÆ II
Hannes Kristjánsson fæddist á Tjörnesi í N. Þingeyjarsýslu 6. september, 1883. Dáinn í Manitoba 23. janúar, 1957.
Maki: 15. apríl, 1917 Elín Þórdís Magnúsdóttir f. í N. Múlasýslu 27. september, 1895.
Börn: 1. Baldur Hannes f. 2. júlí, 1918 2. María Guðlaug f. 8. ágúst, 1919 3. Kristján f. 4. janúar, 1921 4. Alda Jóhanna f. 26. maí, 1922 5. Gladstone Albert f. 17. desember, 1923 6. Luther Burbank f. 17. október, 1928 7. Ragnar Lawrence f. 29. ágúst, 1930 8. Leo Frímann f. 28. febrúar, 1932.
Hannes var sonur Kristjáns Sigurjóns Guðmundssonar og Helgu Jóhönnu Þórðardóttur, sem vestur fluttu árið 1888 og settust að í Nýja Íslandi. Þar óx Hannes úr grasi og gekk í skóla á Gimli. Bjó þar alla tíð. Elín flutti vestur árið 1903 með föður sínum, Magnúsi Jóhannssyni.
