Hans H Magnússon

ID: 9931
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1927

Hans Hermann Magnússon fæddist 24. maí, 1864 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Minneapolis 3. júlí, 1927. Bjering vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur árið 1884 með móður sinni, Vilhelmínu Bjering og systur Elínu Þórhildi. Hans fékk vinnu í fataverslun í Duluth og er þar skráður árið 1895. Flytur fyrir aldamót til Minneapolis og þar seldi hann húsgögn.