Hans K Sigurbjörnsson

ID: 9298
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Hans Kristinn Sigurbjörnsson fæddist árið 1861 í S. Þingeyjarsýslu. Hans Hanson vestra.

Maki: Herdís Ketilríður Björnsdóttir f. 11. nóvember, 1869 í Strandasýslu, d. í N. Dakota 4. júlí, 1899.

Börn: 1. Þóra d. 1970 2. Jóna d.1919 3. Sigríður 4. Þorsteinn 5. Björn (Barney) d. 5. mars, 1970.

Hans fór til Vesturheims árið 1878, með foreldrum sínum, Sigurbirni Hanssyni og Aðalbjörgu Jónsdóttur. Herdís fór vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Birni Jósefssyni og Þóru Guðmundsdóttur og systkinum. Þau settust að nærri Mountain í N. Dakota. Þar gengu Herdís og Hans í hjónaband og hófu búskap.  Hans flutti í Vatnabyggð með börn sín árið 1912.