Hansína Jóhannesdóttir fæddist 14. maí, 1856 í N. Múlasýslu. Dáin 21. apríl, 1939 í New Westminster í Bresku Kolumbíu.
Maki: Sigurður Jónsson f. í N. Múlasýslu 8. nóvember, 1840, d.í Fljótsbyggð 5. desember, 1899.
Börn: 1. Jón f. 18. september, 1885 2. Helga f. 1888 3. Guðfinna Hansína f. 13. apríl, 1889 4. Margrét f. 31. desember, 1891 5. Guðmundur f. 1892, d. 6. september, 1893 6. Sigurlaug Guðríður f. 10. ágúst, 1894 7. Gunnar Sigurður f. 22. ágúst, 1896.
Þau fluttu vestur til Winnipeg árið 1893 og fóru þaðan til Nýja Íslands. Settust að í Fljótsbyggð. Hansína flutti ári eftir lát Sigurðar til Winnipeg þar sem fósturdætur hennar, Sigþrúður og Una hjálpuðu henni með stóran barnahóp. Árið 1920 flutti Hansína vestur að Kyrrahafi. Þær voru dætur Sigurðar af fyrra hjónabandi hans.