ID: 8580
Fæðingarár : 1885
Haraldur Kristinsson fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 25. september, 1885. Freeman vestra.
Maki: 14. október, 1926 Jónína Sigurbjörg Björnsdóttir f. í N. Múlasýslu 16. apríl, 1899.
Haraldur fór vestur til Manitoba árið 1905 og fékkst við fiskveiðar á Manitobavatni fyrstu árin. Hann nam land í Siglunesbyggð árið 1911 og bjó þar til ársins 1919 hjá Sigurði bróður sínum. Fór þaðan vestur til Saskatchewan og stundaði fiskveiðar á Dore Lake nærri Prince Albert. Eftir einhvern tíma hætti hann þar og flutti til baka til Manitoba og hóf búskap nærri Glenboro. Jónína fór vestur með foreldrum sínum, Birni Sigurðssyni og Guðrúnu Hallgrímsdóttur, landnema við Glenboro í Manitoba árið 1903.
