Helga Árnadóttir

ID: 2947
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Dánarár : 1907

Sveinn Þórðarson og Helga Árnadóttir Mynd FVTV

Helga Árnadóttir fæddist í Vestmannaeyjum 6. júlí, 1833. Dáin í Utah 15. febrúar, 1907.  Helga Thordarson í Utah.

Maki: 28. október, 1854 Sveinn Þórðarson f. í V. Skaftafellssýslu 19. febrúar, 1827, d. 4. nóvember, 1901.

Börn: 1. Solveig Þórdís Jórunn f. 24. apríl, 1858, d. 6. apríl, 1920 í Spanish Fork 2. Jóhanna Guðný Helga f. 9. febrúar, 1861, d. 27. maí, 1927 í Cleveland í Utah 3. Jón Júlíus f. 1. desember, 1872, d. 24. maí, 1951 í Cleveland. 4. Sveinn Magnús f. 1879, dó sama ár.

Fluttu til Spanish Fork í Utah árið 1878 með soninn Jón.  Dætur fóru vestur seinna, Jóhanna Guðný 1881 og Solveig 1880.