Helga Guðmundsdóttir

ID: 14895
Fæðingarár : 1869
Dánarár : 1951

Helga Guðmundsdóttir Mynd IRS (Best & Co., 1 McMilliam St. West, Wpg um 1890)

Helga Guðmundsdóttir fæddist 27. júlí, 1869 á Flögu í Breiðdal í S. Múlasýslu.  Dáin 11. nóvember, 1951 í Fljótsbyggð.

Maki: 6. janúar, 1891  Bjarni Marteinsson fæddist 29. júní, 1863 í Austur Skaftafellssýslu. Dáinn í Nýja Íslandi, 15. október, 1940. Séra Jón Bjarnason gaf þau saman.

Börn: 1. Ernest Hermann f. 17. október, 1891 2. Edwin Marteinn Guðmundur f. 1895 3. Kristrún Helga Grace f. 12. nóvember, 1896 4. Jónína Lára f. 9. október, 1898 5. Kristín Ingibjörg f. 18. september, 1900, d. 1901 6. Guðrún Kristín f. 7. desember, 1903 7. Bjarnfríður Jóhanna 8. Sigurbjörg Anna f. 29. nóvember, 1908.

Bjarni flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 með foreldrum sínum og systkinum. Þau settust að í Hnausabyggð en Bjarni fékk vinnu við járnbrautarlagningu sunnarlega í Manitoba. Hann og Helga hófu búskap á lélegu landi í Geysirbyggð sem þau yfirgáfu árið 1892 og fluttu til Winnipeg. Fóru þaðan í Fljótsbyggð árið 1894 og bjuggu þar síðan. Þar hét Hof.