ID: 12694
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1948
Helga Hallgrímsdóttir fæddist 1863 í N. Múlasýslu. Dáin í Saskatchewan árið 1948.
Maki: Árni Jónsson f. á Hólsfjöllum í S. Þingeyjarsýslu árið 1860, d. í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1946.
Börn: 1. Laufey f. 1887 2. Jón f. 1889 3. Sigríður f. 1893 4. Guðmundur f. N. Dakota 5. Ernest f. N. Dakota 6. Karl (Carl) f. í Winnipegosis 7. Benedikt f. í Winnipegosis.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fóru þaðan suður til N. Dakota. Fluttu árið 1900 til Winnipegosis og þaðan 1907 til Vatnabyggða í Saskatchewan þar sem hann nam land í Grandy sýslu.
