ID: 15902
Fæðingarár : 1814
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1905

Helga Jónsdóttir Mynd Almanak
Helga Jónsdóttir fæddist 12. júlí, 1814 í Rangárvallasýslu. Dáin í Spanish Fork 26. september, 1905. Helga Dedrickson í Utah.
Maki: 2. janúar, 1858 Þórður Diðriksson f. 25. mars, 1828 í Rangárvallasýslu, d. 9. september, 1894.
Barnlaus.
Helga flutti vestur síðla árs, 1854 með Samúel Bjarnasyni og konu hans, Margréti Gísladóttur. Þau komu til Utah 7. september, 1855. Dvaldi Helga í Salt Lake City fyrst um sinn en flutti seinna til Spanish Fork. Þar var hún ætíð mikil hjálparhella margra Íslendinga alla tíð.
