ID: 7009
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1827
Dánarár : 1903
Helga Pálsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1827. Dáin á Big Point í Manitoba 29. mars, 1903.
Maki: Jóhann Arnór Guðmundsson, d. á Íslandi.
Börn: Þau eignuðust 8 börn, vitað að eftirtalin fóru vestur: 1. Jóhann f. 9. júlí, 1856, d. 21. febrúar, 1929 2. Anna f. 21. ágúst, 1862, d. 5. maí, 1954 3. Indriði f. 1867 4. Guðmundína f. 1869.
Helga, ekkja og Guðmundína fluttu vestur til Winnipeg árið 1887. Sama ár fór Jóhann með sína fjölskyldu og settist að á Big Point. Þar hefur Helga að öllum líkindum eytt síðustu æviárunum.
