Helgi Gunnarsson

ID: 10214
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla

Helgi Gunnarsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 16. janúar, 1886. Tók föðurnafn föður síns vestra.

Maki; Sigurrós Kristjónsdóttir f. 20. apríl, 1891 í Nýja Íslandi.

Börn: 1. Gunnar Eyþór f. 30. maí, 1922 2. Guðrún Sigurlaug f. 1. mars, 1924.

Helgi var sonur Gunnars Helgasonar og Benediktu Maríu Helgadóttur, sem vestur fluttu árið 1887. Sigurrós var dóttir Kristjóns Finnssonar og Þórunnar Bjargar Eiríksdóttur í Nýja Íslandi. Helgi óx úr grasi í Hnausabyggð við Winnipegvatn og fór fljótlega að stunda fiskveiði þegar aldur leyfði. Seinna bætti hann svo búskap við.