Helgi Sigurðsson

ID: 6385
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1927

Helgi Sigurðsson og Valgerður Brynjólfsdóttir Mynd FAtV

Helgi Sigurðsson fæddist 6. febrúar, 1845 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Mikley í Nýja Íslandi 31. mars, 1927.

Maki: Valgerður Brynjólfsdóttir f. 4. ágúst, 1853, d. 5. maí, 1932.

Börn: 1. Þorsteinn Brynjólfur f. 12. ágúst, 1872 2. Guðbjörg f. 1887 3. Guðbergur Ástínus 4. Anna Sigríður f. 13. apríl, 1892. Helgi átti dóttur fyrir. Sigríður hét sú og bjó í Mikley.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og settust að í Mikley. Þar hét Ingólfsvík.