Helgi Sigurgeirsson

ID: 19768
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895
Fæðingarstaður : Nýja Ísland

Helgi Sigurgeirsson fæddist í Mikley 28. mars, 1895.

Maki: 29. ágúst, 1925 Ingibjörg Brynjólfsdóttir f. 7. mars, 1894 í Mikley.

Börn: 1. Vilhjálmína (Wilma) f. 28. júní, 1926 2. Kristín f. 28. febrúar, 1928 3. Brynjólfur Helgi f. 1. mars, 1929 4. Magnúsína Katrín f. 10. september, 1935 5. Perrína Gladys f. 18. ágúst, 1937.

Helgi var sonur Vilhjálms Sigurgeirssonar og Kristínar Þóru Helgadóttur landnema í Nýja Íslandi. Foreldrar Ingibjargar  voru Brynjólfur Jónsson og Katrín Magnúsdóttir, landnema í Mikley. Helgi stundaði útgerð og rak sögunarmyllu í Mikley.