ID: 20658
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1906
Dánarár : 1961

Hjálmur Veturliði Mynd VÍÆ IV
Hjálmar Veturliði Hjálmsson fæddist á Gimli í Nýja Íslandi 22. desember, 1906. Dáinn þar á afmælisdaginn sinn árið 1961.
Ókvæntur og barnlaus.
Hjálmar vann ungur við fiskveiðar á Winnipegvatni en seinna sneri hann sár að trésmíði. Hann tók virkan þátt í samfélagsmálum bæjarins, var í Unitarasöfnuði bæjarins, sat í safnaðarnefnd og einnig í kirkjugarðsnefnd. Ennfremur var hann í skipulagsnefnd bæjarins og í stjórn þjóðræknisdeildarinnar. Loks var hann meðlimur lestrarfélagsins og um skeið varaforseti.
