Högni Guðmundsson

ID: 13271
Fæðingarár : 1858
Dánarár : 1925

Högni Guðmundsson Mynd WtW

Högni og Guðrún með börnin Mynd WtW

Guðmundsson fæddist 23. júlí, 1858 í N. Múlasýslu. Dáinn í Lundarbyggð 22. desember, 1925.

Maki: Guðrún Guðný Jónsdóttir f. 5. janúar, 1852, d. í Lundarbyggð 30. apríl, 1931.

Börn: 1. Björg f. 22. júlí, 1890, d. 25. janúar, 1979 á Betel á Gimli. 2. fóstursonur Lárus, d. 1977.

Högni og Guðrún fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889. Þau námu land í Lundarbyggð sama ár með Eiríki, bróður Högna, reistu þar bæ og nefndu Laufás.