Hólmfríður Einarsdóttir fæddist 22.febrúar, 1832 í N. Múlasýslu. Dáin í N. Dakota árið 1904.

Guðrún, Margrét og Ólöf standa, Halldór og Björn sitja. Mynd SÍND
Maki: 1856 Björn Halldórsson f. 20. mars, 1831 í N. Múlasýslu, d. 9. maí, 1920 í Winnipeg.
Börn: 1. Margrét f. 8. maí, 1857 2. Björg f. 16. september, 1862 3. Ólöf f. 1864 4. Guðrún f. 1867 5. Magnús f. 28. nóvember, 1869 6. Björn f. 18. júlí, 1881 7. Halldór f. 16. september, 1876. Misstu tvö börn á Íslandi, Þorbjörgu 1873 og Halldór 1876.
Björn flutti vestur um haf árið 1884 og fór til N. Dakota þar sem hann keypti land í Thingvallabyggð suður af Mountain. Þar bjuggu þau til ársins 1897, þá hætti Björn búskap og flutti norður til Winnipeg í Manitoba. Hólmfríður dvaldi í Garðar hjá dætrum sínum þar til hún dó.
