Hólmfríður Jónasdóttir fæddist að Krossi í S. Þingeyjarsýslu árið 1857.
Maki: Hjálmar Arngrímsson f. í N. Múlasýslu 30. september, 1855, d í Washingtonríki 17. maí, 1919. Anderson í Minnesota, Vopni í Washington.
Börn: 1. Arnljótur (Arlo) f. 23. janúar, 1885 2. Sara/Svava (Carol) f. 1887 3. Hulda f. 1890, d. 1894 í seattle 4. Egill f. 7. mars, 1895 5. Hilda f. 1897.
Hólmfríður flutti vestur til Kanada árið 1881 og flutti fljótlega suður til Minnesota. Hjálmar flutti vestur til Kanada árið 1876 og bjó þar á ýmsum stöðum en settist svo að í Lincoln sýslu í Minnesota. Þar gengu þau í hjónaband og bjuggu til ársins 1892 en þá flutti fjölskyldan vestur að Kyrrahafi. Í manntali í Seattle árið 1910 er Hjálmur skráður Vopni og vann sem mjólkurpóstur.
