ID: 10828
Fæðingarár : 1823
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Hólmfríður Jónsdóttir fæddist árið 1823 í N. Þingeyjarsýslu.
Maki: Helgi Eymundsson fæddist í Skoruvík í N. Þingeyjarsýslu árið 1831.
Barn: Dóttir Hólmfríðar, Konkordía Sófóníasdóttir f. 1864.
Mannsefni Konkordíu, Ólafur Guðmundsson, fór vestur um haf 1876, fór til Manitoba og seinna til N. Dakota. Hann fór heim til Íslands árið 1882 og sótti Konkordíu, og með þeim vestur fóru Helgi og Hólmfríður. Þau fóru til Grafton í N. Dakota. Ólafur og Konkordía fóru vestur til Calgary árið 1886 og settust að seinna í Alberta nýlendunni. Óljóst hvað varð þá um Helga og Hólmfríði.
