Hreiðar Hreiðarsson

ID: 20718
Fæðingarár : 1873
Dánarár : 1958

Hreiðar Hreiðarsson Mynd VíÆ V

Olga C Vilhjálmsdóttir Mynd VÍÆ V

Hreiðar Hreiðarsson fæddist í V. Skaftafellssýslu 27. janúar, 1873. Skaftfeld vestra.

Maki: Olga María Vilhjálmsdóttir f. 3. maí, 1877, d. 8. maí, 1916.

Börn: 1. Olgeir f. 31. mars, 1904, d. 12. júní, 1973 2. Júlíus Hreiðar f. 30. mars, 1906, d. 4. febrúar, 1944 3. Vilhjálmur f. 11. desember, 1907, d. 1. júlí, 1960 4. Þórhallur Páll f. 22. september, 1909 5. Ingimar f. 26. mars, 1911, d. 2. nóvember, 1975.

Foreldrar Hreiðars voru Hreiðar Bjarnason, bóndi í Hátúnum og k.h. Júlíana Magnúsdóttir sem eignuðust ein 20 börn, af þeim dóu 5 í æsku en hin lifðu og fluttu nokkur þeirra vestur um haf. Foreldrar Olgu voru Vilhjálmur Olgeirsson og k. h. Jakobína Jónasdóttir í Winnipeg. Hreiðar var múrari í Winnipeg 1907-1945 og vann við húsbyggingar með bræðrum sínum þar í borg.  Hann tók mikinn þátt í félagsmálum landa sinna í borginni og í íslensku Goodtemplarastúkunni Heklu.