ID: 13642
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1909
Ingibjörg Benediktsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1866. Dáin í N. Dakota 27. september, 1909.
Maki: 1888 Sveinbjörn Guðmundsson f. í Skagafjarðarsýslu árið 1866.
Börn: 1. Sigríður 2. Sigurbjörg 3. Konráð (Conrad). Þrjár dætur dóu ungar.
Ingibjörg flutti vestur til Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Benedikt Péturssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur. Þau settust að í N. Dakota. Sveinbjörn kom þangað með sínum foreldrum, Sigríði Aradóttur og Guðmundi Jóhannessyni árið 1880.
