Ingibjörg Bjarnadóttir

ID: 6967
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1938

Ingibjörg Bjarnadóttir fæddist 19. maí, 1865 í Dalasýslu. Dáin árið 1938 í N. Dakota.

Maki: 1889  Jónatan Árnason f. árið 1862 í Vopnafirði í N. Múlasýslu, d. 24. nóvember, 1951.

Börn: 1. Halldór Valdimar 2. Guðbjörg 3. Sigríður 4. Stefanía 5. Guðrún 6. Lára 7. Þórunn 8. Ingibjörg 9. Málfríður 10. Nanna 11. Árni, lést 16. ára. Eitt dó ungbarn.

Ingibjörg fór vestur frá Geldingaholti í Seyluhreppi í Skagafirði árið 1883. Jónatan fór  vestur til Ontario í Kanada árið 1878 með móður sinni, Þórunni Jónsdóttur, systkinum og stjúpa, Guðmundi Þórðarsyni. Þau fóru þaðan sama ár til Norður Dakota. Jónatan og Ingibjörg námu land í Sandhæðabyggð í N. Dakota og bjuggu þar alla tíð.