ID: 4180
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1946
Ingibjörg Jósepsdóttir fæddist 27. maí, 1873. Dáin í Winnipeg 11. maí, 1946. Johnson vestra
Maki: Kristján Jónsson fæddist árið 1873 í Hnappadalssýslu.
Börn: Fjögur börn þeirra lifðu móður sína, dóttir í Winnipeg (Mrs. E. Erickson) en þrír synir, Ted í Vatnabyggð, Kristján og Albert í Winnipeg.
Ingibjörg flutti vestur til Winnipeg árið 1883 með foreldrum sínum, Jósep Stefánssyni og Jóhönnu Bjarnadóttur og systkinum. Ingibjörg og Kristján hófu búskap í Winnipeg þar sem Kristján starfaði við húsgagnasmíði. Fluttu vestur í Vatnabyggð og settust að í Leslie þar sem Kristján var með kjötverslun auk þess að stunda nautgriparækt á eigin landi. Fluttu svo aftur til Winnipeg.
