Ingibjörg Ófeigsdóttir

ID: 12182
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1934

Ingibjörg Ófeigsdóttir Mynd VÍÆ IV

Ingibjörg Ófeigsdóttir fæddist 27. október, 1856 í N. Múlasýslu. Dáin 22. desember, 1934 í Manitoba

Maki: Guðmundur Finnsson f. í Snæfellsnessýslu 27. nóvember, 1853, d. í Selkirk 21. maí, 1922.

Börn: 1. Kristinn f. 4. febrúar, 1882, d. 16. ágúst, 1969 2. Felix f. 21. febrúar, 1885, d. 21. febrúar, 1921 3. Gustave f. 26. október, 1887, d. 21. mars, 1888 4. Gustave Adolph f. 11. september, 1892 5. Finnur Ófeigur f. 5. desember, 1894, d. 20. október, 1953 6. Guðmundur Wilfred f. 4. maí, 1898.

Guðmundur flutti vestur árið 1876 og settist að í Mikley í Nýja Íslandi. Fékk þar vinnu í sögunarmyllu við vélaeftirlit. Hann kunni sitt fag því 1879 fékk hann svipaða vinnu í sögunarmyllu í Fljótsbyggð. Hann ákvað síðan að hefja búskap í Ísafoldarbyggð árið 1887 en það átti ekki við hann. Fékk hann vinnu á gufuskipum á Winnipegvatni næstu árin en 1891 fluttu þau til Selkirk þar sem Guðmundur vann í sögunarmyllu.