Ingibjörg Sigfúsdóttir

ID: 7022
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Ingibjörg Sigfúsdóttir fæddist árið 1861 í Skagafjarðarsýslu.

Maki: 1887 Jónas Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1858, d. 4. desember, 1930.

Börn: 1. Jón f. 13. janúar, 1887 í Akra 2. Árni Lawrence f. 7. september, 1891 3. Sigfús Mozart f. 17. október, 1895 í Markerville 4. Rannveig Frances f.24. nóvember, 1904 í Markerville, d. 24. október, 1926 í Morden, Manitoba.

Jónas fór vestur til Nýja Íslands með föður sínum árið 1876 og bjó þar til ársins 1878. Fór þá í fyrsta landnemahópnum suður til N. Dakota og nam land í Hallsonbyggð. Jónas og Ingibjörg fluttu vestur í Markervillebyggð í Alberta árið 1889 en hurfu þaðan til Morden í Manitoba árið 1923.