
Ingibjörg Sveinsdóttir Mynd VÍÆ I

Hermann von Renessee Mynd VÍÆ I
Ingibjörg Sveinsdóttir fæddist í Hjaltastaðaþinghá 4. júní, 1884. Emma von Renessee í seinna hjónabandi.
Maki: 1) 26. maí, 1906 Björn Eyjólfsson f. 24. júlí, 1882 í S. Múlasýslu, d. í Nýja Íslandi 10. ágúst, 1924 2) 14. janúar, 1926 Hermann von Renessee f. í Þýskalandi 9. apríl, 1882, d. 3. febrúar, 1953.
Börn: 1. Með Birni, Björn Albert f. 2. nóvember, 1919 2. Með seinni manni Ingibjörg Mathilde f. 24. júlí, 1927.
Ingibjörg var dóttir Sveins Guðmundssonar Borgfjörð og Þorbjargar Guðmundsdóttur sem vestur fluttu árið 1894 og settust að í Álftavatnsbyggð í Manitoba. Hún gekk í barna- og unglingaskóla í Lundar flutti síðan til Winnipeg til að vinna. Hún og Björn bjuggu fyrst í Geysisbyggð en fluttu til Gimli 1908 og opnuðu rakarastofu og veitingastað. Árið 1914 lá leið þeirra í Arborg og þaðan til Lundar. Ingibjörg lét ætíð mikið til sín taka í íslenskum samtökum og félögum. Seinni maður hennar rak rjómabú í Arborg.
