Ingibjörg Valdimarsdóttir

ID: 12799
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Rannveig Ingibjörg og fjögur börn hennar. Hallfríður hvítklædd aftast. Mynd Minnesota 1905 Well Connected

Ingibjörg Valdimarsdóttir fæddist árið 1874 í N. Múlasýslu. Johnson vestra.

Maki: 1) Guðmundur Sigurðsson d. á Íslandi 2) Valdimar Jónsson f. 12. febrúar, 1870 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: Með Guðmundi: 1. Hallfríður f. 1886 2. Aðalsteinn f. 1887. Með Valdimar 1. Valdimar f. 1889, d. 1889 2. Guðrún Rose f. 29. júni, 1890 3. Valdimar Jónas f. 26. janúar, 1893 4. Valdina f. 1895 5. Gustav f. 1896 6. Lawrence f. 1898 7. Leo f. 1900 8. Steinunn f. 1903 8. Stephania f. 1905.

Ingibjörg flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 með son sinn Valdimar. Þaðan lá leið þeirra til N. Dakota. Valdimar fór árið 1878, átta ára gamall, vestur til N. Dakota með móður sinni, Guðrúnu Halldórsdóttur. Valdimar og Ingibjörg bjuggu í N. Dakota fyrstu árin en í manntali 1900 eru þau núsett í Pohlizt hreppi í Roseau sýslu í Minnesota. Hallfríður, dóttir Ingibjargar kom þangað frá Íslandi árið 1903. Seinna flutti fjölskyldan vestur að Kyrrahafi og í manntali í Washington, 1920 er hún skrað í Blaine.