Ingiríður Ketilsdóttir

ID: 17240
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1896

Ingiríður Ketilsdóttir Mynd VÍÆ I

Ingiríður Ketilsdóttir fæddist 15. febrúar, 1896 í Brandon í Manitoba.

Maki: 10. maí 1916 Jón Friðrik Jónsson fæddist í Mýrasýslu 27. október, 1892.

Börn: 1. Gordon Reginald f. 22. nóvember, 1928.

Ingiríður var dóttir Ketils Sveinssonar og Pálínu Sigurðardóttur úr Biskupstungum sem vestur fluttu árið 1887 og settust að í Brandon. Jón fór vestur árið 1893 með foreldrum sínum Jóni Sigurðssyni og Guðríði Jónsdóttur. Hann bjó í Brandon í Manitoba árin 1893-1925, flutti þá vestur til Vancouver. Hann lagði húsgagnasmíði fyrir sig og eignaðist þar trésmíðaverksmiðju. Hann lét samfélagsmál í Vancouver sig varða, var t.a.m. forseti félags húsbyggjenda, og Mainland Millwork Association. Ingiríður var dóttir Ketils Sveinssonar og Pálínu Sigurðardóttur úr Biskupstungum.